Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Lausasölulyf/
Calcium-Sandoz 500mg 20stk

Calcium-Sandoz 500mg 20stk

Product information


Short description

Kalsíum er lífsnauðsynlegt steinefni. Það er nauðsynlegt fyrir myndun og viðhald beina. Calcium-Sandoz er ætlað til þess að fyrirbyggja og meðhöndla kalsíumskort og má nota ásamt öðrum lyfjum til þess að fyrirbyggja og meðhöndla beinþynningu. Calcium-Sandoz má einnig nota ásamt D 3 vítamíni, til þess að meðhöndla beinkröm (mýking beina í vexti hjá börnum) og beinmeyru (mýking beina hjá fullorðnum). Kalsíum frásogast úr meltingarvegi og dreifist um líkamann með blóðinu. Kalsíum hefur mikilvægt hlutverk í starfsemi líkamans. Það er nauðsynlegt fyrir starfsemi tauga, vöðva og hjarta sem og fyrir blóðstorknun. Auk þess hefur það áhrif á verkun margra hormóna. Til þess að uppfylla öll þessi hlutverk verður kalsíum að vera til staðar í viðeigandi vefjum í nægjanlegu magni. Vera má að læknirinn hafi ávísað lyfinu til annarrar notkunar eða í öðrum skömmtum en tilgreindir eru í þessum fylgiseðli. Fylgið ávallt fyrirmælum læknisins og upplýsingunum á merkimiða apóteksins.

Lagerstaða

Lagerstaða