Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Lausasölulyf/
CitraFleet 2skammtar

CitraFleet 2skammtar

Product information


Short description

CitraFleet er notað til að hreinsa þarmana (þ.e. smáþarma og ristil) fyrir greiningarrannsóknir sem þarf að gera á hreinum þörmum, til dæmis ristilspeglun (rannsókn þar sem notað er langt sveigjanlegt speglunartæki sem læknir setur inn um endaþarminn) eða röntgenrannsókn. CitraFleet er duft með sítrónuilmi og sítrónubragði. Í hverjum skammtapoka er blanda tveggja hægðalyfja sem eru leyst upp í vatni og drukkin til að skola og hreinsa þarmana. Mikilvægt er að þarmarnir séu tæmdir og hreinsaðir til þess að læknirinn eða skurðlæknirinn fái skýra mynd af þeim. CitraFleet er ætlað fyrir fullorðna (þ.m.t. aldraðir) 18 ára og eldri.

Lagerstaða

Lagerstaða