Dasergin 5mg 30stk
Product information
Short description
Hvað er Dasergin Dasergin inniheldur desloratadin, sem er andhistamín.
Hvernig Dasergin virkar Dasergin er ofnæmislyf sem veldur ekki syfju. Það hjálpar til við að hafa hemil á ofnæmisviðbrögðum og einkennum þeirra.
Hvenær nota á Dasergin Dasergin dregur úr einkennum ofnæmisnefkvefs (bólga í nefgöngum vegna ofnæmis, t.d. heymæði eða ofnæmi fyrir rykmaurum) hjá fullorðnum og unglingum, 12 ára og eldri. Einkennin eru hnerri, nefrennsli og kláði í nefi, kláði í efri gómi, kláði í augum, rauð eða tárvot augu.
Dasergin er einnig notað til að draga úr einkennum ofsakláða (einkenni í húð vegna ofnæmis). Einkennin eru kláði og ofsakláði.
Léttir þessara einkenna varir allan daginn og hjálpar þér við að endurheimta eðlilega starfsgetu og eðlilegan svefn.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.
Lagerstaða
Lagerstaða
