Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Lausasölulyf/
Fluconazol Krka 150mg 1stk

Fluconazol Krka 150mg 1stk

Product information


Short description

Fluconazol Krka tilheyrir flokki lyfja sem kallast „sveppalyf“. Virka efnið er fluconazol. Fluconazol Krka er notað til að meðhöndla sýkingar af völdum sveppa og einnig er hægt að nota það til að koma í veg fyrir að þú fáir candidasýkingu. Gersveppurinn Candida er algengasta orsök sveppasýkinga. Fullorðnir Læknirinn gæti hafa ávísað þessu lyfi til að meðhöndla eftirfarandi sveppasýkingar: - Heilahimnubólgu af völdum sætumyglu (cryptococcal meningitis) – sveppasýking í heila. - Þekjumyglu (coccidiodomycosis) – sjúkdómur í lungum. - Sýkingar af völdum Candida sem finnast í blóði, líffærum (t.d. hjarta, lungum) eða þvagrás. - Sveppasýkingu í slímhúðum – sýking í slímhúðinni sem þekur munninn og kokið að innan og sár/eymsli eftir gervitennur. - Sveppasýkingu í leggöngum eða á getnaðarlim. - Sveppasýkingu í húð – t.d. fótsvepp (athlete‘s foot), búksvepp (ringworm), klofsvepp (jock itch), naglsvepp. Þú gætir einnig hafa fengið Fluconazol Krka til að: - koma í veg fyrir að heilahimnubólga af völdum sætumyglu taki sig upp aftur. - koma í veg fyrir að sveppasýking í slímhúðum taki sig upp aftur. - minnka líkur á endurkomu sveppasýkingar í leggöngum. - koma í veg fyrir að þú fáir sýkingu af völdum Candida (ef ónæmiskerfið þitt er veiklað og starfar ekki eðlilega). Börn og unglingar (0 til 17 ára) Læknirinn gæti hafa ávísað þessu lyfi til að meðhöndla eftirfarandi sveppasýkingar: - Sveppasýking í slímhúðum – sýking í slímhúðinni sem þekur munninn og kokið að innan. - Sýkingar af völdum Candida sem finnast í blóði, líffærum (t.d. hjarta, lungum) eða þvagrás. - Heilahimnubólgu af völdum sætumyglu (cryptococcal meningitis) – sveppasýking í heila. 2 Þú gætir einnig hafa fengið Fluconazol Krka til að: - koma í veg fyrir að þú fáir sýkingu af völdum Candida (ef ónæmiskerfið þitt er veiklað og starfar ekki eðlilega). - koma í veg fyrir að heilahimnubólga af völdum sætumyglu taki sig upp aftur.

Lagerstaða

Lagerstaða