Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Lausasölulyf/
Flynise 5mg 30stk

Flynise 5mg 30stk

Product information


Short description

Hvað er Flynise Flynise inniheldur virka efnið desloratadin sem er andhistamín. Hvernig virkar Flynise Flynise er ofnæmislyf sem veldur ekki syfju. Það vinnur gegn ofnæmisviðbrögðunum og einkennum þeirra. Hvenær á að nota Flynise Flynise dregur úr einkennum ofnæmisnefkvefs (bólga í nefgöngum vegna ofnæmis, t.d. frjónæmi eða ofnæmi fyrir rykmaurum) hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri. Einkennin eru m.a. hnerrar, nefrennsli og kláði í nefi, kláði í efri góm, kláði, roði eða tár í augum. Flynise er einnig notað gegn einkennum er tengjast ofsakláða (ofnæmisviðbrögð í húð). Þessi einkenni eru m.a. kláði og upphleypt útbrot. Léttir þessara einkenna varir allan daginn og hjálpar þér við að endurheimta eðlilega starfsgetu og eðlilegan svefn. Þú verður að hafa samband við lækninn ef einkenni versna eða batna ekki á 7 dögum. Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Lagerstaða

Lagerstaða