Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Lausasölulyf/
Lamisil Once 1% 4g

Lamisil Once 1% 4g

Product information


Short description

Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Lamisil Once verkar þannig að það drepur sveppinn sem veldur fótsveppnum. Þegar það er borið á fótinn skilur það eftir sig litlausa himnu sem helst á húðinni og losar virka efnið inn í húðina. Hvernig þekkja má fótsvepp (tinea pedis)? Fótsveppur kemur eingöngu fram á fótum. Hann byrjar oft milli tánna og getur borist á iljar og jarka fótanna. Algengasta gerð fótsvepps veldur því að húðin springur eða flagnar, en einnig geta komið fram vægur þroti, blöðrur eða vessandi sár. Þessu fylgir oft kláða- eða sviðatilfinning. Ef þú ert í vafa hvort þú þjáist af fótsvepp skaltu ráðfæra þig við lyfjafræðing eða lækni áður en þú notar Lamisil Once. Læknirinn gæti hafa látið þig fá Lamisil Once við einhverju öðru. Fylgið alltaf leiðbeiningum læknisins. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan einnar viku.

Lagerstaða

Lagerstaða