Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Lausasölulyf/
Nicorette Cooldrops 2mg 160stk

Nicorette Cooldrops 2mg 160stk

Product information


Short description

Nicorette Cooldrops er notað til að draga úr fráhvarfseinkennum og draga úr löngun í nikótín sem fólk fær þegar það reynir að hætta að reykja eða reynir að draga úr fjölda sígarettna, þegar það er að reyna að hætta að reykja. Meðferðin er ætluð fullorðnu reykingafólki, 18 ára og eldra. Nicorette Cooldrops 2 mg munnsogstöflur henta reykingafólki sem er lítið háð nikótíni, þ.e.a.s. fólki sem reykir fyrstu sígarettu dagsins meira en 30 mínútum eftir að það vaknar eða reykir 20 sígarettur eða færri á dag. Nicorette Cooldrops 4 mg munnsogstöflur henta reykingafólki sem er mjög háð nikótíni, þ.e.a.s. fólki sem reykir fyrstu sígarettu dagsins innan 30 mínútna frá því það vaknar eða reykir fleiri en 20 sígarettur á dag. Lyfið getur auðveldað þér að hætta að reykja án tafar eða minnka smám saman reykingar áður en þú hættir þeim alveg. Ef þú telur að þú getir hætt reykingum strax, ættir þú að gera það. Ef þér finnst hins vegar að það sé of stórt skref gætir þú valið að minnka smám saman sígarettufjöldann, sem fyrsta skref í áttina að því að hætta alveg að reykja. Sjá nánari upplýsingar í kafla 3 „Hvernig nota á Nicorette Cooldrops“. Nicorette Cooldrops dregur úr einkennum nikótínfráhvarfs, þ.m.t. löngun sem fólk fær þegar það hættir að reykja. Þegar líkaminn hættir skyndilega að fá nikótín úr tóbaki getur hellst yfir fólk margvísleg vanlíðan, sem kallast fráhvarfseinkenni, t.d. skapstyggð, reiði eða depurð, kvíði, eirðarleysi, einbeitingarskortur, aukin matarlyst eða þyngdaraukning, reykingaþörf, vaknað að næturlagi eða svefntruflanir. Nikótínið í Nicorette Cooldrops getur hjálpað til við að koma í veg fyrir eða draga úr þessari vanlíðan og löngun til að reykja. Til að auka líkurnar á að þér takist að hætta að reykja getur þú jafnframt leita ráðgjafar og stuðnings. 2

Lagerstaða

Lagerstaða