Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Lausasölulyf/
Nicotinell Mint 1mg 36stk

Nicotinell Mint 1mg 36stk

Product information


Short description

Nicotinell Mint tilheyra flokki lyfja sem notaður er sem hjálpartæki þegar verið er að venja sig af reykingum. Nicotinell Mint munnsogstöflur innihalda virka efnið nikótín. Nicotinell Mint munnsogstöflur eru fáanlegar í tveim styrkleikum (1 og 2 mg). Þessi fylgiseðill gildir fyrir Nicotinell Mint 1 mg munnsogstöflur. Nicotinell Mint munnsogstöflur innihalda nikótín sem er eitt af innihaldsefnum tóbaks. Þegar taflan er sogin losnar nikótínið hægt og frásogast í gegnum slímhúð í munni. Þetta lyf er notað til að hjálpa einstaklingum að hætta að reykja. Nikótínið í Nicotinell munnsogstöflum dregur úr fráhvarfseinkennum og reykingaþörf, þegar þú hættir að reykja eða tímabundið meðan dregið er úr reykingum til að auðvelda það að hætta. Með því að draga úr fráhvarfseinkennum og reykingaþörf vinnur Nicotinell Mint gegn bakslagi hjá þeim sem eru reiðubúnir til þess að hætta reykingum. Ráðgjöf og stuðningur við sjúklinga eykur líkur á árangri. Nicotinell Mint munnsogstöflur eru ætlaðar þeim sem reykja og eru 18 ára og eldri.

Lagerstaða

Lagerstaða