Postinor 1.5mg 1stk
Product information
Short description
Postinor er neyðargetnaðarvörn sem nota á innan 72 klst. (3 daga) eftir óvarðar samfarir eða ef getnaðarvarnir hafa brugðist. Það á við í eftirfarandi tilfellum: - Þegar engin getnaðarvörn var notuð við samfarir. - Þegar getnaðarvörnin var rangt notuð, t.d. ef verja rifnaði, rann af eða var notuð á rangan hátt, ef leghringur eða hetta færðist úr stað, rifnaði, var ónýt fyrir eða tekin út of snemma, ef ekki tókst að rjúfa samfarir (t.d. sæði sprautast inn í leggöng eða á ytri kynfæri).
Postinor inniheldur samtengt efni, levonorgestrel, sem líkir eftir hormóni í líkamanum. Það kemur í veg fyrir um 84% væntanlegra þungana þegar það er tekið innan 72 klst. eftir óvarðar samfarir. Það mun ekki koma í veg fyrir þungun í öllum tilfellum og er áhrifaríkara ef það er tekið eins fljótt og hægt er eftir óvarðar samfarir. Betra er að taka það innan 12 klst. frekar en að bíða þangað til á þriðja degi.
Postinor er talið verka með því að: • hindra egglos; • hindra að sæðisfruma frjóvgi egg sem þegar hefur verið losað.
Postinor getur aðeins komið í veg fyrir þungun ef það er tekið innan 72 klst frá óvörðum samförum. Það virkar ekki ef að þungun hefur þegar átt sér stað. Ef að óvarðar samfarir eiga sér stað eftir að Postinor er tekið (einnig ef þetta á sér stað í sama tíðahring) mun lyfið ekki koma í veg fyrir þungun eftir seinni samfarir.
Postinor er ekki ætlað til notkunar fyrir fyrstu tíðablæðingar.
Lagerstaða
Lagerstaða