Rosazol 10mg/g 25g
Product information
Short description
Rosazol inniheldur sýklalyf sem einungis verkar gegn fáum tegundum örvera. Rosazol er notað við húðsjúkdómnum rósroða. Rósroði kemur einkum fram sem roði eða rauðir bólguhnúðar á enni, nefi, kinnum og höku. Rósroði er algengastur hjá konum milli 30 og 50 ára. Áður en meðferð með Rosazol kremi hefst skal læknir staðfesta sjúkdómsgreininguna.
Ekki er ljóst hvort kremið verkar á rósroða með því að hafa áhrif á bakteríuflóru húðarinnar eða með annarri verkun á húðina. Ekki hefur verið sýnt fram á að kremið sé virkt gegn öðrum húðsjúkdómum eða sýkingum.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
Lagerstaða
Lagerstaða
