![325006837_868372764486528_6752710359104214131_n](https://www.reykjanesapotek.is/wp-content/uploads/2023/01/325006837_868372764486528_6752710359104214131_n-scaled.jpg)
Það er okkur sönn ánægja að kynna nýtt tilraunaverkefni sem er ný viðbót við lyfjafræðilega þjónustu í apótekum.
Lyfjastoð er persónuleg viðtalsþjónusta sem fer fram í Reykjanesapóteki og gefur viðskiptavinum okkar tækifæri til að spyrja allra þeirra spurninga sem þau hafa um lyfjameðferð sína í persónulegu samtali við sérþjálfaðan lyfjafræðing.
Þjónustan er kjörin fyrir alla sem taka lyf við hjarta- eða æðasjúkdómum á borð við blóðþynningarlyf, blóðþrýstings- og blóðfitulækkandi lyf. Þar sem um þróunarverkefni er að ræða er þjónustan fyrst um sinn bundin við einstaklinga sem taka lyf í þessum lyfjaflokkum. Lyfjafræðingar okkar eru þegar byrjaðir að bóka viðtalstíma.
Verkefnið er unnið af Reykjanesapóteki í samstarfi við Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja – HSS